Aftur í ár hefur hópur hlaupara skráð sig til leiks í Reykjavíkurmaraþoninu á Menningarnótt og valið að hlaupa fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru og safna fyrir starf sjóðsins.
Það þykir okkur einstaklega vænt um. 🩷
Á Menningarnótt í fyrra skapaðist ógleymanleg samvera í kringum hlaupið þegar um 350 hlauparar hlupu í bleiku fyrir Bryndísi Klöru og fjöldi fólks kom saman með okkur.
Í ár verður fyrirkomulagið einfaldara. Minningarsjóðurinn verður ekki með sérstaka samveru eða viðburð í tengslum við hlaupið og við ætlum að eiga þennan dag aðeins rólegri.
Menningarnótt hefur djúpa og sérstaka merkingu fyrir fjölskyldu Bryndísar og fólkið sem stóð henni næst. Um leið þykir okkur ómetanlegt að sjá að aðrir halda áfram að bera minningu hennar og þau gildi sem sjóðurinn stendur fyrir út í samfélagið.
Nýir bleikir bolir Minningarsjóðs Bryndísar Klöru eru tilbúnir og öllum sem eru skráðir og hlaupa til styrktar Minningarsjóðinum stendur til boða að fá bol að gjöf.
Hlauparar sem vilja bol eru beðnir um að senda okkur skilaboð á Facebook með nafni og bolastærð. Þá finnum við afhendingarstað og stund sem hentar þér.
Þegar hlaupinu lýkur þarf kærleiksstemmningin ekkert að gera það.
DJ Margeir og vinir okkar standa fyrir MOMENT á Klapparstíg frá kl. 12:30 til 22:00, þar sem dans, kraftur og kærleikur fá að ráða ferðinni allan daginn.
MOMENT styður Minningarsjóð Bryndísar Klöru og okkur þykir sérstaklega vænt um að sjá fólk utan sjóðsins taka frumkvæðið, skapa eitthvað fallegt og halda kærleiksandanum áfram út Menningarnótt.
Við hvetjum hlauparana okkar, vini sjóðsins og alla sem vilja taka þátt í kærleiksstemmningunni til að líta við á Klapparstíg eftir hlaupið, dansa með og njóta dagsins.
Við þökkum öllum hlaupurunum okkar, DJ Margeiri og vinum hans, og öllum þeim sem leggja sitt af mörkum á Menningarnótt, fyrir að heiðra minningu Bryndísar Klöru og hjálpa okkur að láta kraftinn og kærleikann halda áfram. 🩷