Sumarherferð Riddara kærleikans er í ár unnin í samstarfi við ísbúðir Huppu. Markmið herferðarinnar er að styðja áfram við opnun Bryndísarhlíðar og setja kærleika, samkennd og samtal á dagskrá í íslensku samfélagi.
Herferðinni verður formlega hleypt af stokkunum 15. júlí kl. 16.00 við ísbúð Huppu að Búðakór 1 í Kópavogi. Herferðinni verður formlega hleypt af stokkunum kl. 16.00 við ísbúð Huppu að Búðakór 1 í Kópavogi. Þar verður sannkölluð kærleiksgleði og sjálfur kærleiksriddarinn Páll Óskar mun skemmta gestum.
Riddarar kærleikans hvetja alla sem geta til að koma í ísbíltúr í Kópavoginn, fagna kærleikanum og fá sér ís.
Í sumar mun Huppa selja sérstakan Kærleiksbragðaref og Kærleiksís í öllum ísbúðum sínum. Allur ágóði af sölu þeirra rennur til uppbyggingar Bryndísarhlíðar.
„Kærleikurinn birtist oft í litlu hlutunum, eins og að setjast niður saman yfir ís. Nú getur sá litli hlutur haft stór áhrif. Með hverjum kærleiksís geta viðskiptavinir okkar lagt sitt af mörkum. Við hvetjum alla til að taka þátt og hjálpa okkur að gera þetta sumar að sumri kærleikans.“
Telma Österby Finnsdóttir, markaðs- og verkefnastjóri Huppu
„Á tæpum tveimur árum hefur samfélagið sameinast um verkefnið með einstökum hætti. Nú sjáum við árangurinn verða að veruleika með opnun Bryndísarhlíðar síðar á árinu. Verkefnið hefði aldrei orðið að veruleika án samstöðu einstaklinga, fyrirtækja og stofnana. Það er krafturinn í því að standa saman.“
Riddarar kærleikans
Riddarar kærleikans og Minningarsjóður Bryndísar Klöru hafa í rúmt ár unnið saman að opnun Bryndísarhlíðar og virkjað þann mikla kærleikskraft sem býr í íslensku samfélagi.
Markmið Minningarsjóðs Bryndísar Klöru er að safna 200 milljónum króna til verkefnisins. Nú þegar hafa safnast 160 milljónir króna með ómetanlegum stuðningi einstaklinga og fyrirtækja. Með þátttöku Huppu fær söfnunin öflugan stuðning við að ná lokamarkmiðinu.
Bryndísarhlíð verður til húsa í Gamla Kennaraskólanum við Laufásveg 81 í Reykjavík. Þar verður samþætt áfalla- og ofbeldismóttaka Landspítala, þar sem öll lykilþjónusta verður veitt undir sama þaki.
Í Bryndísarhlíð verður meðal annars ný ofbeldismóttaka fyrir börn og ungmenni, ásamt sérhæfðum teymum sem sinna áfallameðferð og stuðningi við þolendur ofbeldis. Markmiðið er að tryggja skjóta, samræmda og faglega heilbrigðisþjónustu án þess að börn og fjölskyldur þeirra þurfi að fara á milli ólíkra staða eða kerfa.
Stefnt er að opnun Bryndísarhlíðar síðar á árinu. Kærleiksherferð sumarsins er mikilvægur hlekkur í því að koma verkefninu alla leið heim.
Komum saman að Búðakór 1 kl. 16.00 í dag, fáum okkur ís og gerum sumarið að sumri kærleikans.
Grunnskólinn í Hveragerði
