🩷Á hverju ári bætir MOMENT við ógleymanlegum augnablikum í minningabankann fyrir þúsundir gesta sem sækja Menningarnótt. Í ár ætla DJ Margeir og MOMENT að bæta um betur og styrkja af öllu afli Minningarsjóð Bryndísar Klöru 🩷

UM VIÐBURÐINN

Einu sinni ári gerast undursamlegir töfrar á Klapparstíg sem erfitt er að lýsa í orðum. Þúsundir sálna lifna til lífsins, upplýsast og svífa saman inn í undraheim danstónlistar undir fagmannlegri handleiðslu DJ Margeirs, sem ár hvert laðar að sér sífellt óvæntari og skemmtilegri gesti.

Viðburðurinn litríki er ókeypis í boði Icelandair og allir eru velkomnir. Borgarstjóri mun setja Menningarnótt á MOMENT sviðinu kl. 12:30 laugardaginn 22. ágúst.

„MOMENT er í raun einskonar dansmaraþon á Menningarnótt þar sem góð stemmning, ljós og kærleikur eru í fyrirrúmi. Okkur langar að nota þann kraft sem verður til á Klapparstígnum til góðs og hvetjum alla sem hafa notið augnabliksins með okkur í gegnum árin til að styrkja Minningarsjóð Bryndísar Klöru. Ég skora jafnframt á aðra öfluga aðila sem hafa sett svip sinn á Menningarnótt í gegnum árin að finna leið til að styðja við þetta góða málefni. Ef við öll leggjumst á eitt getum við látið hátíðina snúast um meira en skemmtunina eina og skapað raunveruleg, jákvæð áhrif.“
- DJ Margeir

Á moment.is getur þú tekið þátt og keypt styrktarmiða þar sem öll framlög renna óskipt í Minningarsjóð Bryndísar Klöru.
DJ Margeir og MOMENT munu jafna öll framlög, krónu á móti krónu, allt að 500.000 krónum.

✨ STYRKTARMIÐAR ✨

Ef þú kaupir styrktarmiða fer nafn þitt í pott og þú átt möguleika á vægast sagt glæsilegum vinningum frá veitingastöðum í nágrenni við MOMENT.

✨ VINNINGAR ✨

Monkeys, fimm rétta kvöldverður fyrir tvo ásamt fordrykk

KOL, sex rétta smakkferðalag fyrir tvo

Bastard Brew & Food, botnlaus brunch fyrir tvo

Lebowski Bar, gjafabréf að verðmæti 15.000 kr.

Kauptu styrktarmiða fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á moment.is og leggðu góðu málefni lið. Þú ert alltaf að fara að vinna!

EFTIRPARTÍ Í IÐNÓ

Þegar Menningarnótt lýkur tekur við MOMENT eftirpartý í Iðnó, í samvinnu við Celebration of US, þar sem 300 dansþyrstir einstaklingar munu halda gleðinni á lofti inn í nóttina.

Ath! Aðeins 300 miðar í boði.

Þessir listamenn koma fram í Iðnó:

🔥 DJ Margeir

🔥 Exos (live)

🔥 Magugu

🔥 Þorgerður

🔥 Oculus

🔥 Bellamix69

🔥 Lísbet Rós

Tryggðu þér miða hér: https://tickets.moment.is/event/moment-a-menningarnott-afterparty-cq2ua5

„Menningarnótt mun alltaf hafa djúpa merkingu fyrir okkur, fjölskyldu Bryndísar Klöru. Þess vegna snertir það okkur þegar fólk ákveður að taka gleðina og kraftinn á Menningarnótt til að skapa eitthvað fallegt og kærleiksríkt í nafni Bryndísar. Við erum DJ Margeiri og öllum þeim sem taka þátt í MOMENT innilega þakklát. Við getum ekki breytt því sem gerðist, en saman getum við haft áhrif á það sem gerist næst.“

Aðrir viðburðir

Sameinumst fyrir jákvæðum breytingum